Fátt er jafnmikilvægt við hvers kyns skrif og villulaus texti og stílhreint málfar. Nauðsynlegt er að fara rækilega yfir textann, útrýma stafsetningar- og innsláttarvillum og og sjá til þess að yfir honum sé gott yfirbragð.
Vandaður prófarkalestur er þess vegna nauðsynlegur, jafnvel fyrir þá sem búa yfir góðri enskukunnáttu. Ég er mjög reynd á þessu sviði og hef lesið yfir sérhæfðar umsóknir, auglýsingar, kynningarbæklinga, námsritgerðir og bækur.
Viðskiptavinir eru m.a.:
"Það er lítið vit í vitlausri ensku, eins og sagt er. Við hjá Iceland Express setjum traust okkar á Elizu, enda hefur hún oftar en ekkikomið í veg fyrir að við settum eitthvað óttalega asnalegt á ensku á heimasíðuna okkar eða í fréttabréf til þúsunda Evrópubúa. Aðrir ættu að fara að okkar ráðum." Valgeir Valdimarsson, Iceland Express
Vinsamlegast hafið samband ef meðmæla eða dæma um fyrri störf er óskað, eða til þess að koma á kynningarfundi